föstudagur, janúar 3

Hajjjj! Ég heiti Eiríkur og ég er með mastersgráðu í bloggi. Ég hef rökstuddan grun um að þið séuð öll lélegir bloggarar, sjá blaðsíðu 75 í mastersritgerð minni. Hún heitir Bloggað um Sófann og er í formi skáldsögu. Sagan er lauslega byggð á barnabókinni Kári litli og Lappi, og fjallar um erfðabreytta kind, erfðabreyttan hund og lítinn dreng að nafni Örn Hamar. Hann er líka erfðabreyttur. Höfuðlag Arnar er lauslega byggt á höfuðlagi hamarshákarls, en það bauð upp á mikla áskorun fyrir væntanlega tölvuteiknara myndarinnar, t.d. hvernig getur drengur með augu sem vísa til hægri og vinstri horft í augun á erfðabreyttu kindinni. Hreyfir hann hausinn nokkrar gráður til hægri og vinstri með hraða kólibrífuglsins, svo að hann virðist hafa augu sem eðlilegt barn? Þarf þá ekki að breyta handritinu? Hvað verður þá um systur erfðabreytta hundsins, Frauð Úrsúlu, sem þróaði með sér tvö eineygð höfuð til að Örn Hamar gæti horft í augu hennar? Er ekki hægt að notast við einhvers konar speglasystem?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home