þriðjudagur, desember 31

Gleðilegt ár dúllurnar mínar!

Eftirfarandi er persónulegt uppgjör ársins 2002:

1. Útskrifast úr FÍH, gaman var
2. Davíð Þór að gera Rask, ég með að spila, ég að gera skemmtilega tónlist
3. Rúnk að gera plötu, ég með að spila, fólk að gera tónlist af lífsgleði og áhuga
4. Rúnk að halda Viðey 2002, óóógeðslega gaman
5. Ég að fara til Köben í inntökupróf og tékka á stemmaranum í Berlín, gaman var
6. Tónaflokkurinn, besta vinna í heimi...
7. Fara með stelpu í bíó sem fannst ég vera töff og hélt að ég hefði átt alveg hundrað kærustur
8. Flytja til Amsterdam, fá bíbopp og svingaling í hausinn...ekki alltaf jafn gaman, en gaman samt
9. Spila og gera tónlist með Beauty Kings, og þaðan hoppa beint á European Tour með söngflokknum Meymi og gista í rútu í tíu daga
10. Allir vinir mínir, sem ekki áttu kærustu/kærasta, fengu sér eintak... og sumir bara trúlofuðu sig...
11. Ég að horfa á báðar kærustur bræðra minna með kúlu á maganum...
12. Pabbi hætti að vinna...og keypti golfsett handa mömmu í jólagjöf!

Hurru þetta var magnað ár...ég ætlaði sko fyrst að semja einhvern djók annál um árið en síðan breyttist þetta óforvarandis í persónulegt yfirlit. Ég var ekki búinn að fatta hvað þetta ár hefur verið töff og frábært...og ég er ekki einu sinni búinn að minnast á þegar ég spilaði inn á lag með Á móti Sól! Hvað er þetta mál? Ást á línuna beibís, Eiríkur

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home