sunnudagur, júní 16

Ég vil koma hérna á framfæri smá leiðréttingu á misskilningi sem ef til vill er farið að gæta hér. Þegar Benedikt segir að við séum að "þykjast gera eitthvað", "gera voða lítið merkilegt" eða að "hanga af okkur sedduna", þá meinar hann að það sé allt í alveg rúllandi gangi og að við í Tónaflokknum séum á hraðleið inn í þjóðlífið.

Númer tvö: Ég hef tekið mér listamannsnafnið DJ Dickfinger sjálfum mér til framdráttar. Það þykir smellið, alþjóðlegt, og þar að aukið bæði smellið og alþjóðlegt í senn. Nafnið á sér uppruna í grískri goðafræði, en eins og kunnugir vita var drottnari sjávarins, Póseidon, ávallt kallaður Dickfinger í bekkjarpartýum í sjöundabekk. Af þessu er einnig komið þýska ættarnafnið Dirkfleischer. Þekktasti einstaklingurinn sem ber þetta göfuga ættarnafn er sennilegast Einar Dirkfleischer, frjálsíþróttamaðurinn knái.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home