Va fan nu er jag pa blogger.
Hæ félagar, vinir, kunningjar og vandamenn. Hér eru nýjustu fréttir frá Lundi. "Endast Svenskt kött í Lunds skolkök"!!! Eins og allir eiga að vita er mikið rætt um kúariðu i evrópu ídag. Fréttir herma að Þýðverskt kjöt sé smitað þessum bráðbrepandi konsistens og að ekki sé óhætt að borða slíkt kjöt, jafnvel þó steikt sé og soðið. Orðrómur komst á stað að þetta sama þýska kjöt væri notað í sænska hamborgara en ollu þessi tíðindi miklum órólegheitum undir yfirborði sænska felferðarsamfélagsins. Eftir að þessi frétt barst út hef ég ráðstafað mínum háttum þannig að ég borða einungis á kebabstað sem servjerar aðeins sænskt kjöt, sem á að vera kúariðu laust. (Það stendur á skilti í glugganum) Ég fæ mér að vana alltaf sama réttin á hverjum degi þannig að ég er orðin vel þekktur á staðnum. Fólk heisar mér vinalega á meðan það hugsar: "þarna kemur einfaldi Íslendingurinn sem fær sér alltaf Kebabtalrik með vitlöjksås". Ég er enn ekki kominn með nein einkenni af riðunni og ætla þessvegna að halda áfram að borða á staðnum. Ég er núna að klára öll þau verkefni sem eru eftir þangatil að jólum. Ég er t.d. núna að lesa Freud og er að fara á Þjóðmynjasafnið í kaupmannahöfn einhverntíman í vikunni að fræðast um arkeologi. Ég er farinn að hlakka mikið til að komast heim að hitta ykkur en það verður á þriðjudaginn í næstu viku. jæjæ bæ bæ ég tékka á þessari síðu seinna í dag. þetta er mjög sniðugt konsept.
p.s. ég þekki núna mann sem hözzlaði einfætta stelpu á djamminu og for með henni heim. Hann heitir Jonas og á heima í Gautaborg.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home