jæja
Til hamingju með íbúðina!!! Þú verður nú að gefa aðeins nákvæmari upplýsingar. Hvað er hún stór? Hvað eru mörg herbergi fyrir og eftir breytingu? Er gott útsýni? Hvar er Auður í Svíþjóð?OOhhh mig langar líka að kaupa mér risíbúð í þingholtunum.
Annars allt gott að frétta. Ég hlustaði á jóladisk hljómsveitarinnar Rúnk í dag, át mandarínur og piparkökur og komst í jólaskap. Síðan átti ég langan og ómerkilegan fund niður í skóla varðandi sýningu sem við erum að setja upp. Í kvöld hef ég verið að safna kröftum fyrir brjálaða viku sem er framundan.
ok bæ

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home