þriðjudagur, júlí 6

Mér fannst ganga alveg hraedilega. Thad voru tíu mínútur á mann og madur var stoppadur í 15 takti í öllum lögunum og bedid um naesta. Thad var mjög taugatrekkjandi og ég nádi aldrei ad komast í neinn fíling, hugsadi bara um hvad ég fengi ad spila langt í laginu. Auk thess var ég alveg ósofin, Grikkir voru ad fagna alla nóttina og ég var líka bara stressud, nádi ad dotta í hálftíma ádur en ég thurfti ad vakna. Allir voru látnir maeta kl. 9 og thad kom ekki ad mér fyrr en ad verda fjögur. Thetta var ógedslega erfitt. Prófnefndin var svo ofaná alltsaman rosastíf og thegar ég var búin ad spila bentu thau á dyrnar og sögdu: ,,Tharna er flóttaleidin."
Í dag kom ég svo í píanótíma, alveg á bömmer. Frú Ong var samt frekar gladleg, og hafdi heyrt thokkalega jákvaeda hluti um mig. Thad er samt allt mjög óvíst, enn eiga 200 manns eftir ad spila, á morgun og hinn, og svo fara allar stiganidurstödur til rektors og hann ákvedur hverjir komast inn og hverjir ekki. Fae ekkert ad vita fyrr en eftir ca. 3 vikur!
Ofbodslega er samt gott ad vera búin, var í sólbadi í allan dag og aetla á barinn á eftir. Svo kem ég bara brádum heeeeeeeeiiiiim!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home