Ojojoj. Ég fór á einkar skimmtiliga tónleika í gær hjá Tómasi R. Einarssyni, útgáfutónleika fyrir plötuna hans, Havana, en hann gerði sér lítið fyrir og fór til Kúbu í sumar og tók hana upp með alvöru fólki. Mjöög svalt hjá mínum. Með honum í gær voru meðal annars tveir kúbverjar, tres-gítarleikari og trompetleikari. Ossooo...nú er ég aldeilis geðveikt þreyttur, svaf lítið og mætti á æfingu klukkan níu í morgun eins og kreyzý men, og fór síðan beint að æfa mig eftir það. Tók ofvirkni í æfingum og kom síðan heim allur einkennilegur og þreyttur. Soldið eins og að hafa verið að reikna geðveikt mikið, nema hvað að ef maður myndi líka geifla sig í framan allan tímann og blása inn og út. Enn nákvæmar væri jafnvel hægt að líkja þessu við að hafa verið að spila á trompet. Jæja. Gúbbless.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home