Hérna í Hellulandi er rósrauð birta og ég sit hérna og kjammsa á gulrót, íklæddur brúnni hempu og handleik rauða hárkollu. Sjitt. Sorrí. Ætlaði ekki að vera svona artí! aahahhAAHa! Var í bíltúr með mömmu að skoða nýju íbúðina sem Jonni og Sigga voru að kaupa i Grafarholtinu, alveg upp við vatnstankana. Mér líst vel á þetta hverfi, ég held að það eigi eftir að breyta Guðmundi Kára litla í rokkstjörnu og pönkara. Allt er í byggingu og það er bókað alveg milljón krakkar í hverfinu og stutt út í móa og niður að Reynisvatni. Stuð fyrir litla brjálæðinga. Samt alveg fáránlegt hvað þetta er stórt hverfi! Rídikjúlús að þetta hafi risið bara upp úr engu á svona stuttum tíma.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home