föstudagur, mars 14

Jæja...ég spilaði í hollensku ríkisútvarpi í gær með biggbandi skólans og tókst að lauma einu prumpi í útsendinguna á meðan kynnirinn var að tala. Hvað geta eiginlega margir sagt að þeir hafi prumpað í beinni á erlendri ríkisútvarpsstöð? En þetta var mjög gaman giggs, haldið í einhverjum ríkum svefnbæ fyrir utan Amsterdam, krádið var hefðbundið bigbandkrád (enginn undir 65 ára fyrir utan aðstandendur og starfsmenn umönnunargeirans). Og núna ætla ég að hoppa upp í lest til Prag, þar er ég mun vaða í villtum dansi í brúðkaupi. Nota bene, ég er ekkert að grínast með að hoppa upp í lestina. Það verður sko tekið tilhlaup í dag. Þetta verður langstökk.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home