Það er hægt að "hægrismella" á makka með því að halda inni ctrl og smella. En annars er ekki málið að nota Explorer (ég fæ það allavega ekki til að virka), Safari er málið, eða bara lesa á oven.bragur.com og blogga gegnum blogger.com.
Fór í fudbold í gær á Museumplein, við hliðina á skólanum. Stuð í boltanum. Það var ótrúlega gott veður í gær og það virðist ætla að vera svipað í dag...weiz. Annars er bara góð helgi að baki, fyrst í Haag og svo í Amsterdam. Annars er bara stríðið alltaf í sjónvarpinu...mér finnst svo ótrúlegt að horfa á CNN þar sem þeir eru með stríðssérfræðinga sem tala um stríðsátök eins og þau væru fótboltaleikur, og almennt að horfa upp á þessa þjóð vera í raunverulegu stríði úti í heimi. Dark side alveg að koma í gegn þessa dagana...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home