Það var djamm í gær til að kveðja Tinnu Ott. (eða Tott, einsog ég kalla hana). Þar voru bara stelpur með brjóstaskorur og síðan Nalli Máni lífskúnstner að vefja jónur. Mjög fínt. Ragnhildur Blöndal vinkona mömmu var hér í heimsókn áðan. Hún er að drepast úr hræðilegri tannpínu í hvorki meira né minna en SJÖ TÖNNUM, en það versta er að hún var hjá tannlækni sem myndaði hana alla sundur og saman og fann enga skemmd og sendi hana heim. Hún var hérna grenjandi og hakkandi í sig verkjalyfjakokteila. pælið í ógeði.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home