Hyundai-albínóapíanóið er selt!!!!! Ég er því 160.000 krónum ríkari. Mér finnst það rosaleg fúlga.
Ég er öll að æsast í Slóveníu planinu, en það er plan um að fara til Slóveníu á næsta ári. Skólagjöld eru reyndar 300.000kr. á ári en ekkert fær mig stöðvað eftir að hafa skoðað hvern Ljublianabæklinginn á fætur öðrum. Það var einsog að skoða ævintýrabók, lítill kastali uppá hæð, marglit gömul hús, og allstaðar var minnst á hvað vínmenningin væri góð þarna! Þetta er í vinnslu.
Dagný: Vona að þér gangi vel með fyrirlesturinn á morgun, sko þú veist ekki hvað ég dáist mikið að þér að hafa getað gert þessa ritgerð yfirhöfuð!
Það er magnað í KARATE, krakkar! Allir að finna sér karateskóla, hvar sem þeir eru staddir. Ekki skemmir fyrir ef kennarinn er algjört hönk með sítt hár og lætur kalla sig Sjampæ (þótt hann heiti reyndar Jonni). Það er gott að finna japanskar rætur sínar þrisvar í viku, hneigja sig fyrir fánum og svara öllu með OSS!
OSS

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home