Ég sendi Guðnýju og Guðrúnu Dalíu baráttukveðjur og hressingu i formi hugskeytis og ég hringi bráðum.
Til hamingju með afmælið Benni og Sverrir. Það hlýtur bara að vera góð tilfinning að vera 23. Afmælisgjöfin frá mér verður koss í hugskeytaformi. Það er frekar leiðinlegt að allt þurfi að vera í hugskeytaformi en ef einhver vill hitta mig þá er velkomið að senda mér flugmiða. Það er líka hægt að hringja eða senda bréf.
Allt er annars gott. Það er reyndar ekkert sérstakt í skólanum sem er smá breyting frá síðustu önn en ég bjóst alveg við því svo að það er bara að þrauka.
Ég þarf að drífa mig að pakka. Við erum að fara til Malmköping til pabba hans Egils að ná í bílinn:)
Ástarkveðjur

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home