tjé
Við Egill fórum á fimmtudaginn í sólbað við vatn hér skammt frá. Við vorum voðalega glöð að geta slakað á og látið brúnkuna leka yfir okkur. Þegar við vorum lögst niður sáum við litla skrítna fugla en við nánari athugun kom í ljós að þetta voru GEITUNGAR. Þeir voru u.þ.b. svona .................................................................................................................................................................. stórir. Benni hefði fengið taugaáfall. Benni hefði reyndar fengið taugaáfall bara við að sjá hvað voru margir venjulegir eða "litlir". Við entumst í klukkutíma og sórum að koma aldrei aftur. Það er búið að vera svo heitt í Svíþjóð í sumar að allar pöddur eru í 2faldri stærð svo að við erum hrædd við að fara að sofa.
Annars byrjar skólinn á morgun og ég fæ pening.
Til hamingju með íbúð Eiki og Valdi.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home