Ferbloggar Eiki blogg: Nú er ég búinn að komast að því að ég á aldrei að fá mér ADSL tengingu. Eftir að við fengum öppdeit á tölvuna er ég stöðugt að kíkja á netið, í algjörri þvælu og tilgangsleysi. En ég er allavega búinn að lesa diss á Ísland í einhverju bandarísku veftímariti og svo skoðaði ég loksins bumsquad.com. Búinn að vera alveg ofsalega, ofsalega, ossalega spenntur fyrir þeirri síðu lengi. Mmmjájá. Og svo er ég með eitthvað óbragð í munninum eftir að hafa prófað hamborgararelish/óþroskaða tómata oná buurger. Bjuööh.. best að fara að drífa sig út...
kær kveðja,
Eiríkur
ps. Vill einhver kaupa afnotaréttinn af lífi mínu? Hamborgararelish/óþroskaðra tómataóbragð í munninn, einhver?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home