internetenretni
halló internet, er með Braga, Mumm, Julie and Audi TT og vorum að horfa á Trainspotting. Góð mynd. Bragi eldaði readymade kjúkling í tómatsósu og kók með og fæddi okkur. Burrrraaaaah, er ekki alveg nógu intressant í augnablikinu, og þó, hérna stendur Bragi við hliðina á mér og fer að taka myndir af mér, þar sem ég sit og skrifa. Það er nú soldið búst fyrir intressantfaktorinn. Ég hlýt að vera rosalega fótógenískur þegar ég blogga. Kannski ég ætti að fara að hanga á netkaffihúsum að láta uppgötva mig sem handamódel eða láta bjóða mér spottið hans Sigurðar H. Richters í Nýjustu tækni og vísindum. Hmmm... það er rökrétt...
orð dagsins: tómatagot, samanber orðasambandið "að gjóta tómötum".

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home