þriðjudagur, desember 5

Bragur: Èg geri mér grein fyrir tví ad tú tarft ad taka til í herberginu til ad halda áfram ad búa á Lindargötunni. En getur ekki líka verid ad tú turfir ad taka til í sál tinni til ad halda áfram ad búa í lífinu? Hefur ekki Gud fadir tinn sagt tér í tvígang: Haettu nú tessum sódaskap í hugsun og tönkum, og gerdu nú einu sinni hreint hérna. Mjer leidist tetta hálfkák hjá tér.

Annars get ég ímyndad mér ad tad vaeri alls kostar flippigedveikt ad leigja saman íbúd á naesta ári...en tad kostar peninga og erfidi, og ég er ekki viss um ad ég komi til med ad eiga svo mikla peninga. Hvad tá erfidi, tad er svo erfitt ad vinna sér inn erfidi tessa dagana. En tad er gaman ad paela...

Svo hefur afrotimme vikunnar fjallad um kynjamál í djassheiminum. Vid erum öll bjartsyn hvad tetta vardar. Framtídin mun leysa vandann. Dr. Billy Taylor vill tó ekki meini ad tíminn leysi vandann med framkvaemd sjálfs síns, heldur turfi ad grípa til adgerda og tad strax. Tad er td. gjört med kvóta í inntökum í mjúsíkhögskóla. Er tad erfitt mál og vandgjört.

Èg er madurinn sem er med dagsetningar á heilanum: Èg hef bara einn mánud eftir til tess ad vera tvítugur. Sídan verd ég 21 árs og tá er nú allt miklu erfidara. Já, tad hefur sannad sig ad eldra fólk er einfaldlega verri manneskjur en tad yngra. Yngra fólk er handhafi sakleysisins og náttúrulegrar forvitni. Tad neitar ad taka hlutunum eins og teir eru. Eftir einn mánud mun ég tapa öllu tessu og verda viljalaust verkfaeri í höndum skrifraedisins, báknsins sem aldrei laetur sig, kosmíska róbótans, Jafets, if you will. Tví segi ég: AT SJÁLFAN TIG ÚT Í SULTU TAD SEM EFTIR LIFIR MÁNADARINS, OG EF TAD NAEGIR EKKI, VER EINNIG "PÓLITÍSKT SINNADUR" OG MÓTMAELTU EINHVERJU VELTILFUNDNU MÁLEFNI. Eftir mánud mun allt sem ég geri vera kalt útreiknad og byggt á stadreyndum. Tannig ad ef ég ákved skyndilega ad snidganga McDonalds, tá er tad bara af tví ad ég vil líta út fyrir ad vera yngri en ég er. Sannleikurinn er ad inni í sjálfum mér mun ég verda rotnandi hrae af dreng sem einu sinni var.

Takk fyrir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home