Já, Benedikt, satt er tad, Maeja er aldeilis ekki fraenka tín. Nú verdur tad ad vidurkennast ad ég hef ekki hugmynd um hver Maeja er. Ekki tekki ég neina Maeju fyrir utan hana Maeju okkar sem kynnti einhvurn tímann bestu myndböndin í sjónvarpinu. Takk fyrir í kvöld.
Èg teitadi í gaerkvöldi og minnist tess ad hafa skemmt mér alveg hreint ágaetlega. Tad var sumsé innflutningsparty hjá honum Jens okkar allra og tveimur vinum hans, sem spila á píanó og kontrabassa, respectively. Tar gisti ég ásamt um tad bil fimm manns ödrum, og í dag hefur verid einn allsherjar letidagur í hinni sömu íbúd, og pizza étin og Malkovich sédur. Tad var alveg hreint bjútifúl. Svíar kunna sko ad chilla. Sho 'nuff.
Á leidinni í partyid í gaer (leid 3, respectively) settist ég vid hlidina á konu sem var sennilega adeins nokkrum sekúndum frá tví ad verda fertug. Hún hóf ad spjalla og var nokkud rúsud (respectively). Hún sagdi mér ad hún vaeri nyordin sjuksköterska á Sahlgrenska Sjukhuset og hefdi verid ad vinna svo mikid ad hún hefdi ekki skemmt sér í ár og dag. Sídan sagdi hún mér ad hún hefdi einu sinni unnid á Spa-center í Stokkhólmi. Èg gerdi mér grein fyrir afar 80's andlitsfalli hennar og setti hlutina tess vegna í samhengi. "Jaeja, madur er bara sestur vid hlidina á fertugri vaendiskonu á föstudagskvöldi í útlöndum," sagdi ég upphátt vid sjálfan mig. Einnig kom fram ad hún hefdi einu sinni verid módel á Ìtalíu og fengid mikla peninga á teim tíma. Hún turfti svo ad haetta af tví ad kaerastinn hennar var afbrydissamur. Hún var frá Nordur Svítjód, og mér gekk svona frekar illa ad skilja hana. Allt í einu sagdi hún mér ad hún vaeri med krabbamein. Èg fékk alveg sjokk og vard gersamlega ordlaus. Hún sagdi sem betur fer ad hún vaeri á batavegi. Sídan sagdi hún eitthvad sem ég nádi ekki alveg í sambandi vid ad missa hárid, og lyf sem gerdu hana ringlada. Tetta var rosalegt. Og hún var ad fara ad skemmta sér í baenum. Full í sporvagninum. Sídan fór hún út vid Nordstan (McDonald's stadurinn sem Benni, Egill og Bragi hafa allir verid á) og sagdi mér ad hafa tad gott, og kannski saejumst vid seinna í kvöld. Og svo fór hún. Èg sat hálfringladur í sporvagninum alla restina af leidinni.
Og tetta er tad sem ég gerdi í gaer og í dag. Takk fyrir í dag, og gódar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home