þriðjudagur, nóvember 16

Haha Ég var einmitt í þessu að kaupa Café (karlablað) sem er næstum því eins langt frá því að vera kvennréttindablað og hægt er. Ég er nebblega að fara að analysera það ásamt Cosmo. Bera saman, skoða myndir, uppsettningu og innihald. Ég skoða sjálf mjög sjaldan svona blöð og það kom mér á óvart hvað ég var búin að mynda mér mikla fordóma. Blöðin, sérstaklega Cosmo, þar sem ég er ekkert búin að kíkja í Café, eru ekki eins óþolandi og ég hélt. Ég hafði bara nokkuð gaman af sumum greinunum. Það sem ég er aðalega búin að reka augun í eru mótsagnir(paradoxar) t.d. er endalaust verið að fá mann til að kaupa eitthvað og svo geta verið greinar um hræðilegar afleiðingar af kaupsýki inná milli. Eða greinar um hvað það sé frábært að vera singel og í sama blaði greinar um hvernig á að ná sér í karl. Svoldið svona doubel message.

Annars allt gott að frétta. Ég er búin að panta skíðaferðina svo að aftur verður ei snúið. Við förum til Åre með lest og það mun taka 14 tíma. Við förum kl 17, 22 des og verðum komnar um morguninn næsta dag. Þetta verður stuð.




0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home