verði blogg
nú verður bloggað.
í dag vóru upptökur í skólanum með hljómsveit Kristan Borrings. Það var nú aldilis gaman og skemmtanagildið ómælanlegt. Svo sendir Kristian þetta út um allar trissur og býður fólki að bjóða okkur að spila hjá sér. Á morgun fer hann í klippingu og lætur blása á sér hárið og setur í sig strípur og festir á sig kinnalit og ælæner, lætur taka af sér mynd og setur hana á kovverið á demódisknum. Í bandinu eru ég, Valdi Kollei, Kristian og austurrískur trommari að nafni Andreas. Finnur nokkur Hákonarson tók okkur upp og kom með hrúgu af drasli til að gera sér þann leik auðveldari. Honum til aðstoðar var drengur að nafni Friðfinnur, en hann er einmitt að læra að verða hljóðtæknir.
þetta var amsterdam-rapport mánaðarins, í næsta hefti verða teknir fyrir túlipanar og notkun þeirra í majones-sósur hollenskar.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home