Ég er búin að uppgvöðva eitt besta svefnlyf í heimi en það er að lesa nokkrar síður í Jane Eyre fyrir svefninn. Ég vil taka það fram að ég er ekki að dissa þessa bók einfaldlega að benda á hina fjölmörgu eiginleika hennar.
Ég var á fyrirlestri í dag með háfleygasta kennara sem ég hef haft. Hann var alltaf að líkja náminu við ferðalag og eftir að við vorum búin að glósa svolítið niður sagði hann að nú værum við búin að skrifa niður kortið sem við gætum nú sett í bakpokann okkar og haldið áfram gönguna löngu gegnum stjórnmálfræðisöguna. haha

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home