föstudagur, nóvember 8

Ég þarf að skrifa ritgerð(heimapróf) og skila fyrir fimmtudaginn. Ég er mjög tjilluð á því og er viss um að ég nái þó að ég sé ekki einu sinni byrjuð að skrifa. Við erum með þokkó tjillaðan kennara. Hún sagði að ef við værum ekki búnar fyrir fimmtudaginn þá væri það allt í lagi bara ef við látum hana vita. Síðan náðum við líka að fá hana til að sleppa einni bók sem við áttum að skrifa um. Röksemdafærslan var að af því að það var hún sem skrifaði hana þá fannst okkur það e-ð svo jobbigt af því að við þekkjum hana. Eftir að ég náði hinu prófinu sem var mjög lélegt og illa skrifað er ég viss um að ég komi aldrei til með að falla svo framarlega sem ég skila bara einhverju inn.
Auður! Ég er allavegana búin að troða okkur í eitt partý hjá stelpu sem er í veikindafríi alla þessa önn því að hún var að hætta með kærastanum sínum og er búin að vera þunglind síðan. Ég veit að þetta sándar ekki vel en hún er mjög fín og skemmtileg.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home