Af hverju hefur enginn gert klámmynd með píanóstillingarmanni? Er að bíða eftir mínum, tjallinn í vinnunni og svona...síðan er svona sena ofan á hljómborðinu og þá hljómar hungarian rapshody og allir strengirnir slitna. (Líka g!hahahaha!!!)
Var að muna eftir blogger aftur...ég er sko búin að engjast um af samviskubiti yfir að vera ekki búin að svara bréfum frá Benji og Ekji, alltaf þegar ég hugsa um það fæ ég svona svima-vonleysisfíling í samviskuna. Síðan er ég ekki með die Netz þannig að þetta er alltsaman hörmulega erfitt fyrir mig. Bæti úr þessu fyrir jól. Ég lofa. ég er ljón.
Hvernig var á Morrisey maður (þ.e. DogE)?
Lásuð þið um daginn í mogganum að Morrisey sagði í viðtali að ekkert útgáfufyrirtæki hefði enn boðið The Smiths að styðja comeback! ÞAÐ ER ENNÞÁ SÉÉÉÉEEEEeeeeeeenz! Ég var að tengja plötuspilarann minn og enduruppgötva Mothers plöturnar og Fun boy three. Ég skil ekki afhverju Fun Boy Three er ekki ógeðslega vinsælir og hipp. Þeir eru æði. Þó jafnast ekkert á við Gentle Giant. Hvenær kemst metnaðarfullt ómstrítt popp í 11/8 eiginlega aftur í tísku? Ég veit það ekki. Var það einhverntímann í tísku? Nei. (það mætti halda að ég héti Starkaður, hahaha!!!) En eitt er víst, þá verða sko partí hjá mér á hverju kvöldi og það verður ógeðsleg svitafýla í þeim.
Þeim sem verða á landinu og eru free aðra eða þriðju helgi í nóvember er hér með boðið í matarboð hjá mér.(Svitafýlulaust). Ég hef nefnilega öðlast franska gæsalifur, últra delikatizzimo hvítvín og kg af humri. Nammskji Borðodin. Þemað verður klerkauppreisnin á Spáni 1468.
Bið að heilsa öllum til sjávar og sveita, ætla að fara að vera duglegri að skrifa hér.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home